Tannverndarvika: Munnheilsa alla ævi
Tannlæknafélag Íslands stendur fyrir Tannverndarviku dagana 16.–20. mars 2026, með það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi góðrar tannheilsu. Tannverndarvikan er haldin í tengslum við Alþjóðlegan tannverndardag, sem haldinn er 20. mars ár hvert.
Á Alþjóðlegum tannverndardegi og í Tannverndarviku verður lögð sérstök áhersla á heilbrigði munns og tanna. Jákvæðum skilaboðum verður deilt á samfélagsmiðlum þar sem fólk er hvatt til að huga að eigin munnheilsu undir alþjóðlega slagorðinu „A happy mouth is a happy life.“ Nánari upplýsingar og efni tengt deginum má nálgast á vefsíðu Alþjóðasamtaka tannlæknafélaga, World Oral Health Day.
Þetta árið vekjum við athygli á mikilvægi þess að huga að munnheilsu á öllum stigum lífsins – frá fæðingu og fram á efri ár. Sérstök áhersla verður lögð á fræðslu um munnheilsu barna og ungmenna, áhrif nikótíns og koffíndrykkja á tennur og munnheilsu, sem og mikilvægi góðrar næringar og andlegrar vellíðan.
„Góð munnheilsa er mikilvægur hluti af heilsu okkar allra. Með reglulegri tannhirðu, hollu mataræði og reglulegu eftirliti hjá tannlækni má fyrirbyggja marga algenga tannsjúkdóma,“ segir Fríða Bogadóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands. „Tannverndarvikan er góð áminning um að litlar daglegar venjur geta haft mikil áhrif á heilsu okkar til lengri tíma.“
Stjórnendur leik-, grunn- og framhaldsskóla eru hvattir til að leggja áherslu á fræðslu, umfjöllun og viðburði sem tengjast tönnum og tannheilsu í tengslum við vikuna. Fræðsluefni og myndbönd um tannhirðu má nálgast á heilsuvera.is.
Þá eru fyrirtæki sem flytja inn og selja tannhirðuvörur hvött til að nýta Tannverndarvikuna til að kynna vörur sínar. Einnig eru stjórnendur verslana hvattir til að bjóða afslátt af tannhirðuvörum og hollri matvöru á meðan Tannverndarvikan stendur yfir, og draga á sama tíma úr sýnileika og afnema afslátt af sælgæti og súrum drykkjum.

Færðu inn athugasemd